Ástralía 15.10.

Sumir vöknuðu snemma í dag, tímamunur eitthvað að gera vart við sig, en allir sváfu þó vel. Morgunmatur og svo var rútan okkar komin og við af stað út úr borginni. Ekið  í um 1.5-2 tíma og þá komum við í O´Reilley’s vínbúgarðinn í vínsmökkun. Flestir vildu smakka vínið, en múskatið var vinsælast – og auðvitað þetta líka fína súkkulaði. Húfur! Nóg af þeim hérna og þar sem fletsir höfðu gleymt þessari nauðsyn þá fóru nokkrar á íslensk höfuð.

 vínsmökkun
Þá var að athuga hvort breiðnefurinn sæist í litla læknum, en þetta ástralska dýr lét ekki sjá sig.

Næst er það Lamington þjóðgarðurinn. Ástralir eru framarlega í náttúruvernd og strax um 1879 var stofnaður þjóðgarður í landinu. Fjölskylda stofnaði garðinn á fyrri hluta 20. aldar og nú hefur ástralska ríkið tekið við viðhaldinu.

Við fórum í göngu í toppi trjánna, á hengibrú um 25-30 metra hæð. Tré, sem er holt að innan er við hengibrúna og flestir fóru inn í það. Svo voru það fuglarnir, sem eru vanir að fá mat úr höndum, Ingibjörg skipaði einum að skíta á hattinn hjá Stjána og viti menn! Fuglinn skildi skipun á íslensku . . .

systur

Fugl settist á Birnu - sú eina sem ekki vildi hafa fugl á öxlunum. Úppps 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðbjörg Bragadóttir

Höfundur

Guðbjörg Bragadóttir
Guðbjörg Bragadóttir

Leiðsögumaður

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 20130921 114851
  • ...19ipqmm
  • ...24sppkn
  • ...15zgqui
  • ...13joqio

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband